[x]

deviantART

 
About Me Member Photo Manipulator eirikurbjorn18/Male/Iceland Recent Activity Deviant for 1 Year
Needs Premium Membership
Statistics 26 Deviations
179 Comments
1,016 Pageviews

Ferðasagan!

Tue Mar 10, 2009, 10:38 AM
Jæja, ég skrifaði þetta fyrir löngu síðan og mundi svo bara núna að setja þetta inn þar sem ég hafði víst lofað því.
Ég setti þetta ekki inn fyrr af því að ég var ekki alveg búinn með hana en ég lauk henni bara í fljótu máli. Þetta er svona það helsta sem maður sá og gerði en það eru náttúrulega fullt af litlum atvikum sem maður man kannski ekki hvenær gerðust nákvæmlega eða nennnir bara ekki að bæta þeim inn í. Þessar litlu stundir á maður bara fyrir sjálfann sig og ferðafélagana.

Ég og fjórir aðrir vinir mínir flugum til Alicante á Spáni, það tók svona 5 - 6 tíma. Þar sótti okkur Íslenskur maður (sem þekkti frænku vinar míns eða eitthvað svoleiðis) og keyrði okkur í lítinn bæ sem heitir La Marina. Þar fengum við heilan bústað fyrir okkur sem karlinn leigði okkur á mjög lágu verði og því fylgdi fullur íská;pur af mat, vatni og bjór. Við gistum held ég þrjár nætur í þessum bústað, kíktum eitthvað á næturlífið (sem var frekar rólegt) og höfðum það bara frekar kósí.
Þá ákváðum við að okkur langaði að kíkja til Benidorm, sem er aðal túrista/partýbærinn á Spáni. Við fórum þangað með rútu. Ég hafði komið hingað áður og líka einn af vinum mínum þannig að það var lítið mál að finna ströndina og mjög gott hótel. Það sem ég gerði hins vegar ekki síðast var að fara á mesta djamm ævi minnar í Bresku götunni. Það er semsagt heil gata þarna í borginni (og ekki lítil gata heldur!) sem er troðfull af breskum pöbbum, breskum klúbbum, bresku fólki og svo náttúrulega túristum eins og okkur. Þar er víst líka alveg fullt af Íslendingum þarna. Það er meira að segja einn skemmtistaður þarna sem heldur alveg sér upp á Íslendinga. Þeir voru að selja Íslenska boli sem á stóð "Íslenskt Drykkjulið" og svo áttu Íslendingar að fá einhverja fría drykki og afslætti á föstudögum. Eftir eina tryllta partínótt í Benidorm ákváðum við að við værum búnir að vera nógu mikið á Spáni og að okkur langaði nú til Frakklands.

Til að komast til Frakklands urðum við að taka fyrst rútu til Barcelona. Þar gerðist svosem ekki mikið fyrir utan það að við urðum að gista fyrir utan lestastöðina þar sem hún lokaði á milli 12 og 4 um nóttina og við hittum mann sem hét Marco (minnir mig), hann var frá Slóvakíu eða eitthvað þvíumlíkt en hann allavega ferðaðist með okkur alveg heillengi. Við tókum lest alla leið á einhvern stað sem heitir La Tour de Carol. við þurftum reyndar að fara út rétt við landamærin og taka svo rútu restina af leiðinni. Þá sáum við mjög flotta franska skóga og sveitir. Við stoppuðum eiginlega ekkert þar og fórum með lest í einhvern bæ eða borg sem heitir Tolouse. Við gistum bara eina nótt þar og skoðuðum ekkert en hann leit út fyrir að vera voða næs. Þá tókum við næturlest á aðal áfangastaðinn: París. Ef þið skoðið landakort getið þið séð að það er frekar löng leið frá Tolouse til Parísar, meira en hálft landið. Við deildum klefa með Dönskum karli sem var á leiðinni til Köben og spjölluðum aðeins við hann. Þegar við komum til Parísar ætluðum við að gista í farfuglaheimili en það kom einhver „miskúzí“ kall og bauð okkur tvö herbergi á hóteli fyrir sama verð. Hljómar voða vel ekki satt? Rangt. Þetta var ekki beinlínis fínasta hótel sem ég hef komið á. Þar notaði ég svefnpokann minn í fyrsta skipti í ferðinni því að okkur leist ekkert voða vel á rúmin sem við sváfum á. Jæja þetta hótel var svosem ekkert „ógeðslegt“ en það má deila um hvort farfuglaheimilið hefði verið betri kostur. Ég man ekki hvað við vorum lengi í París en við allavega fórum í Eiffel Turninn, Louvre Safnið og kíktum á Notre Dame kirkjuna.
Þegar hér er við sögu komið föttuðum við að við ættum alveg fullt af dögum eftir til að ferðast, svo að við ákváðum að taka „smá“ krók til Þýskalands.

Við tókum semsagt lest til Hamburg. Þegar við komum út af lestastöðinni þar gengum við yfir eina götu og sáum svona fimmhundruð skilti (ýkjur) sem á stóð „HOTEL“. Við fundum okkur 3ja stjörnu hótel sem leit ágætlega út og kostaði ekkert allt of mikið, fórum upp á herbergi og sögðum allir „vá!“. Þetta var semsagt flottasta hótelherbergið í allri ferðinni, með stórum sófa og sjónvarpi og mini-íská;p og alles. Þá ákváðum við að fara út og labba um bæinn og skoða eitthvað, og viti menn, við lentum á risastórri útihátíð. Við vitum ekkert hvaða hátíð þetta var eða útá hvað hún gekk en allavega; í Hamburg er svona stórt stöðuvatn inn í borginni. Útihátíðin náði allann hringinn í kringum vatnið. Þarna voru alls konar básar þar sem var verið að selja alls kyns dót og nammi og mat og svoleiðis. Við gengum einn hring, sem tók þó nokkurn tíma, og fórum svo aftur í hótelið.

Ef ég man rétt þá fórum við næst til Amsterdam í Hollandi, svo til Brussel í Belgíu og svo til London í Englandi og þaðan heim. Amsterdam var mjög skemmtileg, mjög falleg og klikkuð borg þar sem margt er að sjá, en voða friðsæll staður líka. Við vorum bara eina nótt í Brussel, skoðuðum ekkert mikið en við sáum einhverja skrúðgöngu og einhverja súkkulaðihátíð (nammi namm). London var líka voða næs. Við vorum á voða fínu hosteli þar. Við sáum Big Ben og fórum í London Eye og Madam Tussuad's vaxmyndasafnið og líka í The Zoo of London.

Að lokum vil ég bara segja að það ættu allir að taka allavega eina svona ferð á ævinni. Þetta er rosaleg lífsreynsla, maður lærir heilmikið, þetta gefur manni betri sýn af heiminum, maður eignast fullt af minningum verður þannig nánari þeim sem maður ferðast með. En það má líka nefna að þetta er mikill hasar og að þetta er eitthvað það mest þreytandi sem ég hef gert á ævinni. En þannig eru ævintýri.

Eiríkur Björn Örnólfsson, heimsborgari.

  • Mood: Happy

deviantID

Devious Info

  • Current Residence: Akureyri
  • Interests: Films and videogames. And literature I guess...
  • Favourite movie: \
  • Favourite band or musician: Muse, Rammstein, Coldplay, Audioslave, Avenged Sevenfold, Foo Fighters - along with many others...
  • Favourite genre of music: Rock - but I like most genres.
  • Favourite poet or writer: Stephen King.
  • Favourite style of art: Film
  • Operating System: Windows XP
  • MP3 player of choice: Windows Media Player
  • Favourite game: Call of Duty 4 at the moment.
  • Favourite gaming platform: PC.
  • Favourite cartoon character: Gir
  • Personal Quote: Always look at the funny sides of life.
  • Tools of the Trade: Photoshop CS3

deviantART Notice

[x]

Comments


Hæ sjálf :)

--
"I live my life one video game at a time" - Ethan, ctrlaltdel-online.com
[link]

Lullz... I tag you! *poke!*

--
Take a look at my gallery [link] :gallery:
~
Me + 26-black-roses [link] + stock = CrazyBananas-Stock [link] :jarkinajar:
[link]

I Tagz U!

--
member in the
[link] Club
[link] Club
[link] Club
and
[link] Club
[link]

You has been tagged! ;P

--
Chocolate!

Site Map